Markalaust í hálfleik hjá Val og Stjörnunni

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik hjá Val og Stjörnunni í undanúrslitum Visa bikarkeppni kvenna. Liðin eru að leika á Valbjarnarvelli við mjög erfiðar aðstæður. Báðum liðum hefur þó tekist að skapa sér þokkaleg færi en það hefur engu marki skilað. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Breiðablik og Fjölnir og þar er staðan einnig markalaus en sá leikur hófst hálftíma síðar. Leikið er í Kópavogi.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is