Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| mbl
| 22.8.2006
| 18:12
Stjarnan tekur forystuna gegn Val
Björk Gunnarsdóttir framherji Stjörnunnar er búinn að koma liðinu óvænt yfir gegn Val í undanúrslitum Visabikarsins á Valbjarnarvelli. Markið kom á 48. mínútu en Björk slapp inn fyrir vörn Vals og afgreiddi boltann í nærhornið með vinstri fæti rétt áður en hún kom að vítateignum. Björk átti nokkra góða spretti í fyrri hálfleik og hefur reynst varnarmönnum Vals erfið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






