Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| mbl
| 22.8.2006
| 18:46
Valsstúlkur komnar yfir gegn Stjörnunni
Rakel Logadóttir er búin að skora annað mark Valskvenna gegn Stjörnunni í undanúrslitum Visa bikarsins. Markið kom á 75. mínútu en Rakel lyfti knettinum yfir Söndru markvörð Garðbæinga úr dauðafæri. Björk Gunnarsdóttir kom Stjörnunni yfir en Katrín Jónsdóttir jafnaði. Í hinum undanúrslitaleiknum var Breiðablik 1:0 yfir í leikhléi gegn Fjölni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






