Valur í úrslit Visabikarkeppni kvenna

Rakel Logadóttir tryggði Val sigur á Stjörnunni í dag.

Rakel Logadóttir tryggði Val sigur á Stjörnunni í dag. mbl.is/Jim Smart

Valur tryggði sér sæti í úrslitum Visabikarkeppni kvenna í knattspyrnu með sigri á Stjörnunni 2:1 við erfiðar aðstæður á Valbjarnarvelli. Markalaust var í hálfleik en Björk Gunnarsdóttir kom gestunum úr Garðabæ yfir á 48. minútu en Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals jafnaði á 65. mínútu. Það var svo Rakel Logadóttir sem tryggði Val sigur tíu mínútum síðar og Valsstúlkur munu mæta sigurvegaranum úr viðureign Breiðabliks og Fjölnis sem eigast við í Kópavogi. Þar er staðan 1:0 fyrir Blika.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is