Valur nánast orðinn meistari

Valsstúlkur hafa ríka ástæðu til að fagna.

Valsstúlkur hafa ríka ástæðu til að fagna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kvennalið Vals er svo gott sem búið að tryggja sér sigur í úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 4:0 útisigur á Keflavík í gærkvöld. Þegar aðeins ein umferð er eftir af mótinu eru Valsstúlkur í efsta sæti, þremur stigum á undan Breiðabliki. Markatala Vals er hins vegar mun betri og þurfa Blikastúlkur því að vinna upp 31 marks mun ætli þær sér að hirða titilinn. Það mun þó reynast þeim nánast útilokað, ekki síst í ljósi þess að í síðustu umferðinni mætir Valur liði FH, sem situr í neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig. Breiðablik mætir hins vegar Stjörnunni, sem er í fjórða sæti deildarinnar.

Önnur úrslit í kvöld urðu:

KR-Þór/KA 8:1
Breiðablik - Fylkir 6:2
FH - Stjarnan 0:9

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is