Margrét Lára setti nýtt markamet

Margrét Lára Viðarsdóttir.

Margrét Lára Viðarsdóttir. mbl.is/Árni Torfason

Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is
Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, sló 25 ára gamalt markamet í efstu deild kvenna í fyrrakvöld þegar hún skoraði tvívegis í sigri Vals á Keflavík, 4:0. Í síðasta leik Valsliðsins jafnaði Margrét Lára markamet Ástu B. Gunnlaugsdóttur sem skoraði 32 mörk fyrir Breiðablik í deildinni árið 1981.

Með mörkunum tveimur hefur Margrét Lára nú skorað 34 mörk í 13 leikjum Valsliðsins í sumar og getur bætt enn um betur í lokaumferðinni þegar Valur tekur á móti FH. Hún hefur skorað í öllum leikjum nema einum í sumar en hún náði ekki að koma boltanum í netið í ósigri Vals gegn Breiðabliki, 1:2, í 11. umferð deildarinnar. Margrét Lára, sem er aðeins tvítug, hefur nú skorað alls 105 mörk í einungis 67 leikjum í deildinni en þar af gerði hún 48 mörk í 40 leikjum með ÍBV. Á tveimur árum með Val hefur hún skorað 57 mörk í aðeins 27 deildaleikjum, eða rúmlega tvö mörk að meðaltali í leik.

Margrét Lára er sjötta markahæst í efstu deild kvenna hér á landi frá upphafi en vantar þó enn 30 mörk til að komast upp um eitt sæti á þeim lista.

Olga Færseth er langmarkahæst með 246 mörk og er enn að, en síðan koma Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Helena Ólafsdóttir sem gerðu 154 mörk hvor, Laufey Sigurðardóttir með 138 mörk og Ásthildur Helgadóttir landsliðsfyrirliði er með 135 mörk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is