Margrét Lára valin best

Margrét Lára Viðarsdóttir, úr Val, var valin besti leikmaður síðari umferðar efstu deildar kvenna í knattspyrnu, Landsbankadeildarinnar, en tilkynnt var um valið í hádeginu í dag. Þá var þjálfari Íslandsmeistara Vals, Elísabet Gunnarsdóttir valinn besti þjálfarinn fyrir sama tímabil. Þá þóttu stuðningsmenn Vals skara framúr og fengu þeir sérstaka viðurkenningu við sama tilefni. Einnig var valið úrvalslið síðari sjö umferða Íslandsmótsins líkt og gert var að loknum fyrri hluta þess.

Eftirtaldir voru valdir í úrvalslið 8. - 14. umferðar Landsbankadeildar kvenna:

Markvörður:
Guðbjörg Gunnarsdóttir – Val
Varnarmenn:
Ásta Árnadóttir – Val
Guðlaug Jónsdóttir – Breiðabliki
Guðný B. Óðinsdóttir – Val
Ólína G. Viðarsdóttir – Breiðabliki
Tengiliðir:
Erna B. Sigurðardóttir – Breiðabliki
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir – KR
Hólmfríður Magnúsdóttir – KR
Katrín Ómarsdóttir – KR
Framherjar:
Margrét Lára Viðarsdóttir – Val
Nína Ósk Kristinsdóttir – Keflavík
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is