Íslandsmeistararnir halda í þjálfarann: Elísabet hjá Val næstu þrjú árin
Elísabet stýrði Val til sigurs á Íslandsmótinu en Valur hampaði meistaratitlinum um síðustu helgi og liðið varð einnig meistari undir hennar stjórn fyrir tveimur árum. Þá var hún nýkomin aftur til starfa hjá félaginu.
Valur náði frábærum árangri í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð undir stjórn Elísabetar. Þá leikur liðið til úrslita í VISA-bikarnum á morgun gegn Breiðabliki á Laugardalsvelli en þá mætast tvö bestu kvennalið landsins.
"Knattspyrnudeild Vals ætlar áfram að hlúa að kvennaknattspyrnunni og horfir stolt á þann árangur sem náðst hefur á undanförnum árum og er staðráðin í að gera enn betur á komandi árum. Stefnt er á að meistaraflokkur Vals verði sem endranær í baráttu um alla þá titla sem í boði verða," segir í fréttatilkynningu frá Val í gær í tilefni þess að samningurinn við Elísabetu var framlengdur.






