Jörundur samdi við Breiðablik til þriggja ára

Jörundur Áki Sveinsson.

Jörundur Áki Sveinsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gert samning til þriggja ára við Jörund Áka Sveinsson um þjálfun meistaraflokks kvenna. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá félaginu.

Jörundur Áki var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni árin 1996-1997. Haustið 1997 tók hann við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna Breiðabliks og gegndi því starfi til ársins 2001.
Þá tók hann við meistaraflokki karla hjá félaginu og stjórnaði hann mfl. karla til ársins 2003.
Jörundur var aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fram leiktímabilið 2004 og var síðan aðalþjálfari meistaraflokks karla Stjörnunnar leiktímabilin 2005 og 2006.

Jörundur var aðalþjálfari A-landsliðs kvenna árin 2001-2002 og 2005-2006. Þá þjálfaði hann U-21 árs landslið kvenna árið 2000.

Jörundur hampaði Íslandsmeistaratitlinum með meistaraflokki kvenna hjá Breiðabliki árin 2000 og 2001 og varð einnig bikarmeistari með sama liði 1998 og 2000.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is