Bryndís sleppur við keppnisbann
Bryndís var boðuð í lyfjapróf eftir síðari leik Breiðabliks og Arsenal í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í London í október sl. en mætti ekki þar sem hún hafði ekki hugmynd um að hún hefði átt að mæta í prófið. Aganefnd UEFA var með málið til umfjöllunar og í gær bárust fregnir af því að Bryndís yrði ekki úrskurðuð í keppnisbann og fær hún áminningu frá UEFA vegna atviksins. Breiðablik fær einnig áminningu frá UEFA.
Bryndís lék ekki umræddan leik vegna meiðsla. Hún sat í áhorfendastúkunni og fylgdist með leiknum þaðan en var samt á leikskýrslu Breiðabliks. Sjö varamenn eru leyfðir í Evrópukeppninni og þar sem ekki voru 18 leikfærir leikmenn með í för var Bryndísi bætt á skýrsluna, án hennar vitundar, og var nafn hennar dregið út þegar kom að lyfjaprófinu.






