Tvær stúlkur frá Charlton til Stjörnunnar
Kvennalið Stjörnunnar í knattspyrnu hefur náð samkomulagi við enska úrvalsdeildarliðið Charlton um að fá tvo leikmenn félagsins til liðs við sig í sumar.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Kimberley Dixsons og Ann Marie Heatherson, sem báðar voru í leikmannahópi Charlton á nýliðinni leiktíð. Heatherson kom við sögu í 16 leikjum og skoraði 2 mörk og Dixsons lék 3 leiki.
,,Ég hef séð þær spila einn leik með Charlton og hef líka séð þær á nokkrum æfingum og þær munu án efa styrkja okkar lið enda góðir leikmenn þarna á ferð," sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari Stjörnunnar, við Morgunblaðið en hann dvaldi hjá Charlton í nokkra daga í vetur.
Heatherson er 23 ára gömul og leikur í stöðu framherja og kantmanns. Hún hefur leikið með öllum yngri landsliðum Englendinga og einn leik með A-landsliðinu
Dixsons er tvítug og leikur í stöðu miðjumanns og bakvarðar. Hún hefur leikið með U-19 og U-21 árs liði Englendinga. Þær koma til landsins 30. maí og missa því af fyrstu tveimur leikjum Stjörnunnar í Landsbankadeildinni.
Harpa komin frá Charlton
Landsliðskonan Harpa Þorsteinsdóttir lék með þeim hjá Charlton síðari hluta tímabilsins en Harpa er komin heim og leikur með Garðabæjarliðinu í sumar.,,Harpa hafði gott af dvölinni og kemur til okkar reynslunni ríkari. Það verður erfitt fyrir okkur að keppa við Val í sumar en við ætlum að reyna að vera með í toppbaráttunni. Ef við sleppum við meiðsli þá ætti það að vera hægt," sagði Jóhannes.
Stjarnan endaði í fjórða sæti í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð með 24 stig, 15 minna en Valur sem varð Íslandsmeistari.






