Olga með sitt 250. mark

Olga Færseth..

Olga Færseth.. mbl.is

Olga Færseth fyrirliði og framherji KR-inga hélt áfram að bæta markamet sitt í efstu deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi þegar hún skoraði fjórða markið í 4:1 sigri KR á Breiðabliki í Landsbankadeildinni. Þetta var 250. mark Olgu í efstu deild í 187 leikjum og er hún langmarkahæst frá upphafi. Ásta B. Gunnlaugsdóttir og Helena Ólafsdóttir koma næstar með 154 mörk og Laufey Sigurðardóttir 138.

Olga skoraði 34 mörk í 45 leikjum fyrir ÍBV, 45 mörk í 37 leikjum fyrir Breiðablik og hefur skorað 171 mark í 105 leikjum með KR.

Þessar eru með flest mörk frá upphafi:

Olga Færseth 250

Ásta B. Gunnlaugsd. 154

Helena Ólafsdóttir 154

Laufey Sigurðardóttir 138

Ásthildur Helgadóttir 135

Margrét Lára Viðarsdóttir 108

Hrefna Jóhannesdóttir 102

Ásgerður H. Ingibergsdóttir 98

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir 91

Kristrún L. Daðadóttir 87

Bryndís Valsdóttir 83

Guðlaug Jónsdóttir 82

Margrét R. Ólafsdóttir 80

Guðrún Sæmundsdóttir 68

Hólmfríður Sæmundsdóttir 68

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is