Margrét Lára með þrennu fyrir Val gegn ÍR

Úr leik Breiðabliks og KR á dögunum.

Úr leik Breiðabliks og KR á dögunum. Árni Torfason

Fjórir leikir fóru fram í kvöld í Landsbankadeild kvenna. Breiðablik lagði Þór/KA með minnsta mun í 2. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld, 3:2, en leikurinn fór fram á Akureyrarvelli við erfiðar aðstæður. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu í 6:0 sigri Vals gegn ÍR. Inga Birna Friðjónsdóttir skoraði tvö mörk í 3:1-sigri Stjörnunnar gegn Keflavík. Agnes Þóra Árnadóttir tryggi KR nauman sigur gegn Fjölni en hún skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

Þór/KA - Breiðablik 2:3

Selma Sigurðardóttir leikmaður Þórs/KA skoraði sjálfsmark strax á 1. mínútu. Arna Sif Ásgrímsdóttir jafnaði fyrir heimaliðið á 26. mínútu áður en Fanndís Friðriksdóttir kom Blikum yfir á 42. mínútu. Sigrún Inga Ólafsdóttir skoraði þriðja mark Breiðabliks á 58. mínútu en á 80. mínútu minnkaði Þór/KA muninn með mark frá Rakel Hönnudóttur. Þrír aðrir leikir fara fram í kvöld og birtast úrslit og markaskor úr þeim leikjum hér á eftir:

ÍR - Valur 0:6

Margrét Lára Viðarsdóttir 19., 28., 43., Rakel Logadóttir 48., Nína Ósk Kristinsdóttir 67., Vanja Stefanovic 78.

KR - Fjölnir 1:0

Agnes Þóra Árnadóttir 90.

Stjarnan - Keflavík 3:1

Inga Birna Friðjónsdóttir 37., 59., Harpa Þorsteinsdóttir 84. - Vesna Smiljkovic 17.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

finnur.is