Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| mbl
| 27.7.2007
| 10:52
Kvennalið Breiðabliks fær liðsstyrk
Danska knattspyrnukonan Mette Olesen hefur gengið til liðs við Breiðablik. Olese, sem er 23 ára miðjumaður, kemur frá danska liðinu Team Viborg, en það féll úr dönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hún hefur leikið 6 landsleiki með landsliði Dana skipað leikmönnum 21 árs og yngri.
Olesen hefur fengið leikheimild hjá KSÍ og getur þess vegna verið í liði Breiðabliks sem sækir Fylki heim á Fylkisvöllinn í kvöld. Leikur liðanna er einn fjögurra sem þá fer fram í Landabankadeild kvenna. Hinir leikir kvöldsins eru; Stjarnan - ÍR á Stjörnuvelli, Þór/KA tekur á móti Íslandsmeisturum Val og loks leika KR og Keflavík á KR velli. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






