Valur á toppinn í Landsbankadeild kvenna

Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði þrennu gegn Stjörnunni.

Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði þrennu gegn Stjörnunni. mbl.is/Eggert

Valskonur tryggðu sér toppsætið á ný í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar þær sigruðu Stjörnuna á útivelli 4:1. Valur er þá með 28 stig eftir tíu leiki en KR er með 25 stig og á leik til góða. Nína Ósk Kristinsdóttir skoraði þrennu fyrir Val. Keflavíkurkonur eru komnar upp í þriðja sæti deildarinnar með 15 stig eftir sigur á Akureyri í kvöld 2:1. Sigurinn stóð þó tæpt því heimaliðið var 1:0 yfir þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Þór/KA er því áfram á botninum með þrjú stig eins og Fylkir.

Stjarnan 1:4 Valur

Harpa Þorsteinsdóttir 85. - Nína Ósk Kristinsdóttir 18., 66., 74, Katrín Jónsdóttir 89.

Þór/KA 1:2 Keflavík

Ivana Ivanovic 30. - Danka Podovac 81., 90.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is