Úrslitin eftir bókinni

Breiðablik og Keflavík unnu sína leiki á heimavelli í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Blikar tóku á mót neðsta liðinu, Þór/KA og var leikurinn þokkalega jafn en lauk með 2:0 sigri blika. Greta Mjöll Samúelsdóttir gerði fyrra markið á 7. mínútu og Laufey Björnsdóttir það síðara á 79. Keflavík lagði Stjörnuna 3:1 í Keflavík þar sem Lilja Íris Gunnarsdóttir skoraði tvívegis og Una Harkin einu sinni fyrir Keflavík en Harpa Þorsteinsdóttir gerði mark Stjörnunnar.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is