KR-konur lögðu Fjölni í Grafarvogi

KR sigraði Fjölni, 4:2, í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram í Grafarvogi. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvívegis fyrir KR og þær Katrín Ómarsdóttir og Olga Færseth eitt mark hvor en Rúna Sif Stefánsdóttir gerði bæði mörk Fjölniskvenna. KR náði Val þar með að stigum á ný á toppi deildarinnar en bæði lið eru með 28 stig eftir 10 leiki.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is