Fyrsti sigur Fylkis

Fylkir vann sinn fyrsta sigur í Landsbankadeild kvenna í dag þegar liðið lagði Fjölni 2:1. Gestirnir úr Grafarvogi komust yfir á 55. mínútu en Ásta Huld Guðmundsdóttir skoraði tvívegis með mínútu millibili skömmu síðar og þar við sat. Fylkir fór við þetta upp fyrir ÍR og er í næst neðsta sæti.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is