Breiðablik með yfirburði gegn Keflavík

Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði tvívegis fyrir Breiðablik.

Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði tvívegis fyrir Breiðablik. mbl.is/ÞÖK

Breiðablik sigraði Keflavík 4:1 í Landsbankadeild kvenna á Kópavogsvelli í kvöld og stigu þar með stórt skref í þá átt að tryggja sér þriðja sæti deildarinnar. KR-konur komust í kvöld í toppsæti deildarinnar með 4:0 sigri á Stjörnunni en Valskonur eiga leik til góða á KR og geta komist upp að hlið þeirra.

Breiðablik 4:1 Keflavík

Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Jill Mansfield, Greta Mjöll Samúelsdóttir 2 - Lilja Íris Gunnarsdóttir

KR 4:0 Stjarnan

Hrefna Jóhannesdóttir, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Hólmríður Magnúsdóttir, Olga Færseth.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is