Dóra María farin út

Dóra María Lárusdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, leikur ekki meira með Valsliðinu á þessari leiktíð, en hún er farin út til Bandaríkjanna þar sem hún hefur verið við nám. Valur á þrjá leiki eftir í Landsbankadeildinni á þessu keppnistímabili.

Næst mætir liðið Fylki, því næst KR og Þór/KA í lokaumferðinni. Leikurinn gegn KR verður úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn þar sem liðin eru með jafn mörg stig á toppi deildarinnar. Liðin eru taplaus og hafa unnið alla sína leiki nema einn en þau skildu sem sagt jöfn í fyrri umferðinni. Dóru verður því sárt saknað í þeim leik enda lykilmaður í Valsliðinu.

Dóra missir af fimm leikjum í heildina litið og hefur hún því þegar verið fjarri góðu gamni í tveimur þeirra. Dóra missir ekki af neinum bikarleik þar sem Valur féll úr keppni í átta liða úrslitum gegn Breiðabliki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is