HK/Víkingur og Afturelding unnu sér sæti í efstu deild

Frábær stemming var á Húsavíkurvelli í dag þótt úrslitin yrðu ekki heimamönnum í hag.

Frábær stemming var á Húsavíkurvelli í dag þótt úrslitin yrðu ekki heimamönnum í hag. mbl.is/Hafþór

HK/Víkingur og Afturelding unnu sér í kvöld sæti í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu að ári. HK/Víkingur sigraði Hött 5:1 í Reykjavík og samanlagt 9:4. Á Húsavík hafði Afturelding betur gegn Völsungi 3:0 og samanlagt 5:3. Liðin mætast í úrslitaleik deildarinnar sunnudaginn 9. september.

Mikill áhugi var á leiknum á Húsavík í kvöld. Var brekkan full af fólki og hefur annað eins ekki sést í mörg ár á fótboltaleik á Húsavík.

Í Víkinni var líka fjölmenni að fylgjast með leik HK/Víkings og Hattar en þar voru áhorfendur vel á fjórða hundraðið.

Karen Sturludóttir skoraði þrennu fyrir HK/Víking í kvöld.

Karen Sturludóttir skoraði þrennu fyrir HK/Víking í kvöld. mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

finnur.is