Ferna Olgu í 200. leiknum

Olga Færseth.

Olga Færseth. mbl.is/Árni Torfason

Olga Færseth, hin leikreynda knattspyrnukona og fyrirliði KR-inga, varð í gærkvöld sú fjórða í sögunni til að spila 200 leiki í efstu deild hér á landi. Hún hélt uppá það með því að skora fjögur mörk, þar af þrennu á 8 mínútum, þegar KR vann stórsigur á ÍR, 8:0, í Breiðholtinu. Valur vann Fylki, 3:0, og Valur og KR eru því áfram hnífjöfn á toppnum og úrslitaleikur þeirra um titilinn blasir við í næstu umferð.

Olga braut mótspyrnu ÍR á bak aftur með því að skora þrjú mörk undir lok fyrri hálfleiks en Hrefna Jóhannesdóttir hafði komið KR-ingum yfir snemma leiks. Eftir sjálfsmark snemma í seinni hálfleik var staðan 5:0 þar til undir lokin þegar Olga skoraði sitt fjórða mark og Hrefna náði þrennunni með því að bæta tveimur við.

Olga, sem hefur spilað í efstu deild frá 1992, hefur nú skorað hvorki fleiri né færri en 263 mörk í leikjunum 200 og er sú langmarkahæsta í sögunni, hefur gert 109 mörkum meira en þær næstu í röðinni, Helena Ólafsdóttir, núverandi þjálfari KR, og Ásta B. Gunnlaugsdóttir, sem gerðu 154 hvor á sínum tíma.

Margrét Lára afgreiddi Fylki

Valskonur lentu á meðan í nokkru basli með Fylki en munurinn á liðunum var Margrét Lára Viðarsdóttir sem skoraði þrennu, og lokatölur á Valbjarnarvelli urðu 3:0.

Margrét skoraði úr vítaspyrnu eftir 35 mínútna leik og aftur skömmu síðar, en þriðja mark hennar og Vals kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Margrét Lára er nú komin með 33 mörk í 14 leikjum í sumar, en markametið sem hún setti í fyrra er 34 mörk. Margrét hefur tvo leiki til að slá það. Hún komst jafnframt með mörkunum þremur að hlið Laufeyjar Sigurðardóttur en þær eru nú jafnar í 4. og 5. sæti á markalista efstu deildar frá upphafi með 138 mörk hvor. Margrét Lára hefur gert mörkin í aðeins 82 leikjum.

Jelena bjargaði Keflavík

Jelena Petrovic, markvörður Keflavíkur, tryggði liði sínu stig gegn Fjölni á Keflavíkurvelli í gærkvöld. Hún varði vítaspyrnu frá Guðnýju Jónsdóttur, fyrirliða Grafarvogsliðsins, rétt fyrir leikslok. Vesna Smiljkovic kom Keflavík yfir en Elín Heiður Gunnarsdóttir jafnaði fyrir Fjölni, 1:1, og það urðu lokatölur.

Dýrmætur sigur Þórs/KA

Þór/KA fékk dýrmæt stig í fallbaráttunni með óvæntum sigri á Stjörnunni í Garðabæ, 2:1. Ivana Ivanovic skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu en Pamela Liddell kom áður Þór/KA yfir og Björk Gunnarsdóttir jafnaði fyrir Stjörnuna. Mikilvægur sigur Akureyrarliðsins sem setur Fylki og ÍR í erfiða stöðu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is