„Ég er í skýjunum"

Valur varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna

Valur varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna mbl.is/Golli

Eftir Skúla Unnar Sveinsson

skuli@mbl.is

„Ég er auðvitað bara í skýjunum með þetta allt saman hjá okkur síðustu árin," sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, létt í lund eftir að titillinn var endanlega í höfn í gærkvöldi. Undir stjórn hennar hefur Valsliðið orðið meistari í þrígang síðustu fjögur árin.

"Það var ekki erfitt að koma stelpunum í rétta gírinn fyrir þennan leik. Í fyrra fengum við ekki að spila leik þegar við tókum á móti titlinum og vorum því ákveðnar að spila eins og við best getum hér í kvöld og þær mættu allar mjög vel stemmdar til leiks," sagði Elísabet.

Nóg er framundan hjá Val á næstu vikum því liðið tekur þátt í einum riðli í Evrópukeppninni í Belgíu. "Nú er það Evrópukeppnin og við höfum þrjá vikur til að búa okkur undir það þannig að tímabilið er langt frá því að vera búið hjá okkur.

Við ætlum okkur áfram í keppninni en vitum að það verður ógeðslega erfitt. Við erum þarna að spila við frábær lið, en við ætlum okkur samt áfram. Ég er búin að skoða þessi þrjú lið sem við leikum á móti en núna leggst maður í það af fullum krafti að skoða þau enn betur og sjá hvað til þarf til að komast áfram. Við þurfum að skipuleggja okkur vel og eiga toppleiki til að komast áfram," sagði Elísabet.

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is