Margrét skoraði 38 mörk

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði alls 38 mörk í Íslandsmótinu í ár.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði alls 38 mörk í Íslandsmótinu í ár. mbl.is/Árni Sæberg

Margrét Lára Viðarsdóttir bætti enn markamet sitt í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld þegar hún skoraði þrennu gegn Þór/KA í lokaumferðinni. Hún skoraði þar með 38 mörk í deildinni en fyrra metið sem hún setti í fyrra var 34 mörk. Valskonur gulltryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með stórsigri í leiknum, 10:0.

"Ég var ekki að hugsa um markametið og að bæta það," sagði hún spurð hvort ekki hefði verið gaman að gera fimm mörk og enda í 40 mörkum. „Ég spáði aldrei í það, mig langaði bara að vinna leikinn og það tókst. Ég held ég hafi gert þrjú mörk en það skiptir engu máli hver skoraði," sagði þessi mikli markaskorari.

Hún sagðist ekki vita hvort hún eða einhver ætti eftir að bæta metið. „Ég veit ekkert hvort ég næ að bæta þetta met, enda ekki ljóst hvar ég verð næsta sumar, hér heima eða í útlöndum, maður veit það aldrei. En það væri gaman ef einhver gæti slegið þetta met. Það eru ansi mörg mörk reyndar en kannski ekki ógerlegt," sagði Margrét Lára. 2

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is