Toyota hefur kvatt

Toyotaliðið er horfið úr formúlunni, erfiðleikar móðurfyrirtækisins af völdum fjármálakreppunnar alþjóðlegu er megin ástæða þess. Árangur liðsins var þó með betra lagi í ár miðað við þau fyrri. Jarno Trulli komst þrisvar á pall á árinu og Timo Glock tvisar. Hvor um sig varð einu sinni í öðru sæti. Aldrei rættist sú von Toyota að fara með sigur af hólmi í formúlu-1 áður en yfir lyki. Hér eru nokkrar svipmyndir frá árinu.

Glock æfir sig í bílhermi.
Glock æfir sig í bílhermi.