Forsetahjónin í heimsókn í ólympíuþorpi

Ólafur Ragnar og Dorrit stilla sér upp með Hreiðari Guðmundssyni …
Ólafur Ragnar og Dorrit stilla sér upp með Hreiðari Guðmundssyni og Björgvin Gústavssyni, markvörðum handboltalandsliðsins. mbl.is/Brynjar Gauti

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, komu í dag í í ólympíuþorpið í Peking og heilsuðu upp á íslenska íþróttafólkið.

„Ég heyrði það í samræðum mínum við kínversku forustumennina, sem hafa undirbúið ólympíuleikana, að þeim finnst árangur Íslands í handboltanum hér vera mikil skilaboð til hins mikla fjölda fámennra þjóða, sem eiga hér fulltrúa. Þessi skilaboð eru að litlar þjóðir geta náð langt," sagði Ólafur Ragnar m.a. þegar hann ávarpaði íþróttafólkið. 

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands bauð Ólafi Ragnari að koma á leikana. Forsetinn er verndari sambandsins og mun taka þátt í ýmsum atburðum á vegum sambandsins meðan á dvölinni í Beijing stendur.

Hu Jintao, forseti Kína, hefur óskað eftir að hitta Ólaf Ragnar að máli og verður fundur þeirra í fyrramálið.

Róbert Gunnarsson sýnir Ólafi Ragnari herbergið sem hann hefur til …
Róbert Gunnarsson sýnir Ólafi Ragnari herbergið sem hann hefur til afnota á ÓL í Peking. Brynjar Gauti
Forsetahjónin með Rögnu Ingólfsdóttur og Ragnheiði Ragnarsdóttur.
Forsetahjónin með Rögnu Ingólfsdóttur og Ragnheiði Ragnarsdóttur. mbl.is/Brynjar Gauti
Ólafur Ragnar og Dorrit skoða bindi í íslensku fánalitunum.
Ólafur Ragnar og Dorrit skoða bindi í íslensku fánalitunum.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert