Jakob Jóhann biðst afsökunar

Jakob Jóhann Sveinsson í lauginni í London í gær.
Jakob Jóhann Sveinsson í lauginni í London í gær. mbl.is/Golli

Sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson hefur beðist afsökunar á þeim ummælum sem hann lét falla eftir þátttöku sína í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London í gærmorgun.

Jakob Jóhann var langt frá sínu besta en hann synti á 1:02,65 mínútu en Íslandsmet hans er 1:01,32 mínúta.

Eftir sundið gagnrýndi Jakob æfingar sínar í aðdraganda Ólympíuleikanna og sagði meðal annars að of mikið hefði verið unnið í langsundum.

Jakob sagði æfingarnar hafa verið lélegar í allan vetur en hann var ómyrkur í máli við íslenska fjölmiðla eftir sundið.

Jakob Jóhann sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann biðst afsökunar á ummælum sínum en hana má lesa hér að neðan.

Yfirlýsing Jakobs Jóhanns Sveinssonar:

„Eftir sund mitt í gær fór ég beint í viðtal við íslenska fjölmiðla, ég var mjög svekktur eftir það sund enda árangur langt undir væntingum.

Af ummælum mínum mátti skilja að ég hafi verið að gagnrýna þjálfarann minn og þjálfunaraðferðir hans síðastliðið ár.

Ummælin voru sögð í hita augnabliksins og vil ég biðjast afsökunar á þeim.

Ég er stoltur að því að keppa á Ólympiuleikunum í London fyrir hönd Íslands og mun leggja mig allan fram á næstu dögum bæði í minni eigin keppni og við að styðja við bakið á liðsfélögum mínum í hvaða íþróttagrein sem þeir keppa í.

Virðingarfyllst,
Jakob Jóhann Sveinsson“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert