Fimm Íslendingar taka þátt í ÓL fatlaðra

Efri röð frá vinstri: Jón Margeir Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson og …
Efri röð frá vinstri: Jón Margeir Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson og Helgi Sveinsson. Neðri röð frá vinstri: Sonja Sigurðardóttir og Thelma Björg Björnsdóttir. Ljósmynd/ÍF

Fimm Íslendingar taka þátt á Ólympíumóti fatlaðra, eða Paralympics, sem fram fer í Ríó í Brasilíu 7.-18. september.

Hópinn skipa þrír sundmenn, frjálsíþróttamaður og í fyrsta sinn í íslenskri íþróttasögu mun bogfimikeppandi verða fulltrúi Íslands á leikunum.

Keppendur Íslands eru eftirtaldir:

Jón Margeir Sverrisson – sund - Fjölni
Sonja Sigurðardóttir – sund – ÍFR
Thelma Björg Björnsdóttir – sund – ÍFR
Helgi Sveinsson – frjálsar – Ármanni
Þorsteinn Halldórsson – bogfimi – Boganum
 
Ánægjulegt er að greina frá því að Íslandi tekst að fjölga um einn keppanda á Ólympíuleikum fatlaðra frá London 2012 en þá átti Ísland fjóra fulltrúa, tvo í sundi og tvo í frjálsum. Jón Margeir vann þar til gullverðlauna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert