Danir örugglega áfram í undanúrslit

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari Dana, á hliðarlínunni í kvöld.
Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari Dana, á hliðarlínunni í kvöld. AFP

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari danska karlalandsliðsins í handknattleik, stýrði sínum mönnum til sigurs gegn Slóveníu þegar liðin mættust í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna í Ríó í Brasilíu í kvöld.

Lokatölur í leiknum urðu 37:30 fyrir Danmörku.Mikkel Hansesn og Lasse Svan voru markahæstir hjá danska liðinu með átta mörk hvor og Henrik Toft Hansen kom næstur með fimm mörk.

Danmörk mætir annað hvort Króatíu eða Póllandi í undanúrslitum, en liðin eigast við í kvöld. Þýskaland sem leikur undir stjórn Dag Sigurðssonar mætir Frakklandi í hinni undanúrslitaviðureigninni.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert