Serbar og Kínverjar í úrslitum

Þær serbnesku fagna sigrinum gríðarlega á Bandaríkjunum í gær.
Þær serbnesku fagna sigrinum gríðarlega á Bandaríkjunum í gær. AFP

Serbía vann í gær glæstan 3:2 sigur á Bandaríkjunum í blaki kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í æsispennandi viðureign.

Serbía mætir Kína í úrslitaleiknum en Kínverjar höfðu betur gegn Hollandi 3:1. Úrslitaleikurinn fer fram aðfaranótt sunnudags kl. 03:15.

Bandaríkin og Holland mætast því í viðureigninni um bronsið kl. 18 á laugardag.

Undanúrslitin í karlaflokki fara fram í dag kl. 18 en þá mætast Ítalía og Bandaríkin. Í hinni viðureigninni mætast Rússar og heimamenn í Brasilíu. Búast má við frábærri skemmtun en leikurinn fer fram aðfaranótt laugardags kl. 03:15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert