Níu Íslandsmet slegin í lyftingum

Keppni í lyftingum á Reykjavíkurleikunum var að ljúka rétt í þessu. Hvorki meira né minna en níu Íslandsmet voru slegin í keppninni, þar af átta í kvennaflokki. Sigurvegarar mótsins voru þau Þuríður Erla Helgadóttir, Ármanni, og Gísli Kristjánsson, Lyftingafélagi Reykjavíkur en þau voru stigahæst í keppninni óháð þyngdarflokki.

Þuríður Erla Helgadóttir, Ármanni, setti Íslandsmet í -63 kg flokki þegar hún jafnhattaði 93 kg. Annie Mist Þórisdóttir setti tvö met í -69 kg flokki. Annarsvegar í jafnhöttun þar sem hún lyfti 95 kg og sló 2 ára gamalt eigið met og hinsvegar í samanlögðu sem var 170 kg en gamla metið var 164 kg. Katrín Tanja Davíðsdóttir setti einnig met í -69 kg flokki en það var í snörun þegar hún lyfti 78 kg. Gamla metið átti hún sjálf sem var 76 kg.

Hin stórefnilega lyftingakona, Lilja Lind Helgadóttir sem er aðeins 17 ára gömul og keppir í +75 kg flokki, gerði sér lítið fyrir og setti fjögur Íslandsmet á mótinu. Lilja Lind bætti Íslandsmetið í snörun um 10 kg þegar hún lyfti 80 kg. Síðan tvíbætti hún Íslandsmetið í jafnhöttun fyrst 93 kg og svo 96 kg en gamla metið var 90 kg. Samanlagt lyfti hún því 176 kg sem er 16 kg bæting á Íslandsmetinu í samanlögðu.

Björgvin Karl Guðmundsson var eini karlinn sem setti Íslandsmet á mótinu en hann lyfti 112 kg í snörun sem var 1 kg bæting á hans eigin meti í -85 kg flokki. Þá má geta þess að Gísli Kristjánsson sem verður 50 ára í sumar hefði sett heimsmet í dag ef hann hefði verið að keppa á heimsmeistaramóti öldunga (masters). Aðeins er þó hægt að fá slíkt met skráð á heimsmeistaramótinu sjálfu og ljóst að Gísli þarf að mæta á slíkt mót.

Verðlaunahafar í kvennaflokki – stigakeppni óháð þyngdarflokki

1. Þuríður Erla Helgadóttir, Ármann
2. Björk Óðinsdóttir, Lyftingafélagi Reykjavíkur
3. Anna Hulda Ólafsdóttir, Lyftingafélagi Reykjavíkur

Verðlaunahafar í karlaflokki – stigakeppni óháð þyngdarflokki

1. Gísli Kristjánsson, Lyftingafélagi Reykjavíkur
2. Kristian Helleren, Noregi
3. Andri Gunnarsson, Lyftingafélagi Garðabæjar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert