Sigurður Þór Sigurðsson átti greinilega stóran aðdáendahóp meðal áhorfenda á danskeppni Reykjavíkurleikanna um helgina sem hvöttu hann óspart áfram. Sigurður Þór og Annalisa Zoanetti sem dansa fyrir Ástralíu lentu í öðru sæti í keppninni á eftir fyrrum dansfélaga Sigurðar, Hönnu Rún Óladóttur og dansfélaga hennar Nikita Bazev frá Rússlandi.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði eru þau Sigurður og Annalisa glæsilegt danspar og áttu sannarlega salinn.
Frétt mbl.is: Hanna og Nikita sigruðu