Denise og Þorkell bikarmeistarar (myndskeið)

Í dag var keppt í standard dönsum á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöll. Keppt var bæði um Bikarmeistaratitil og Reykjavíkurleikameistaratitil. Denise Margrét Yaghi og Þorkell Jónsson urðu bikarmeistarar og má sjá einn af glæsilegum dönsum þeirra í keppninni á meðfylgjandi myndskeiði. Denise og Þorkell urðu frá að hverfa að lokinni bikarkeppninni vegna veikinda og tóku því ekki þátt í keppninni um Reykjavíkurleikameistaratitilinn.

Sjá einnig:

Danska parið sigraði í dansi

Hanna og Nikita sigruðu (myndskeið)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert