Lonni og Gitte best í karate

Sigurvegarar í senior flokki, frá vinstri Lonni Boulaneane, Gitte Brundstad, …
Sigurvegarar í senior flokki, frá vinstri Lonni Boulaneane, Gitte Brundstad, Svana Katla Þorsteinsdóttir og Elías Snorrason. Þorsteinn Yngvi Guðmundsson

Karatekeppni Reykjavíkurleikanna fór fram í Laugardalshöllinni um helgina þar sem keppt var bæði í kata (form) og kumite (bardagi) í 4 mismunandi aldursflokkum. Hátt í 100 keppendur frá 9 félögum auk erlendra gesta tóku þátt í mótinu. Í tilkynningu frá Karatesambandi Íslands segir að margar mjög góðar viðureignir hafi farið fram á mótinu og að ljóst sé að gott starf sé unnið í karatefélögum landsins. 

Í úrslitum í kata senior kvenna mættust liðsfélagarnir úr Breiðablik þær Svana Katla Þorsteinsdóttir, núverandi Íslandsmeistari í kata kvenna, og Laufey Lind Sigþórsdóttir.  Svana Katla sigraði eftir framkvæmd á kata sem heitir Annan.  Í þriðja sæti urðu þær María Helga Guðmundsdóttir, Þórhamri, og Hera María Jakobsen, Breiðablik.

Í kata senior karla mættust liðsfélagarnir úr KFR, þeir Elías Snorrason, núverandi Íslandsmeistari í kata karla, og Sverrir Magnússon.  Báðir sýndu þeir frábærar kata í háum styrkleikaflokki, en svo fór að Elías bar sigur úr býtum og vann flokkinn á RIG annað árið í röð. Í þriðja sæti lentu þeir Bogi Benediktsson og Sæmundur Ragnarsson, báðir úr Þórshamri.

Í úrslitum í kumite senior karla mættust sömu aðilar og í fyrra þeir Lonni Boulesnane frá Frakklandi og Bryan van Waesberghe frá Belgíu, en þeir eru í 11. og 22.sæti á heimslista WKF í kumite karla +84kg.  Bardaginn var mjög fjörugur og mikið um stigaskor.  Bardaginn endaði með því að Lonni sigraði 8-5 og vann því mótið þriðja árið í röð. Í þriðja sæti urðu þeir Ólafur Engilbert Árnason og Elías Guðni Guðnason, báðir úr Fylki.

Í kumite senior kvenna mættust Alizee Agier frá Frakkland, núverandi heimsmeistari kvenna í kumite -68 kg, og Gitti Brunstad frá Noregi, silfurverðlaunahafi í kumite kvenna -68 kg frá síðasta heimsmeistaramóti og Norðurlandameistari. Í fyrri umferðum höfðu þær lagt af velli íslensku landsliðskonurnar þær Telmu Rut Frímannsdóttur og Maríu Helgu Guðmundsdóttur, sem enduðu í 3. sæti í flokknum. Bardaginn á milli Alizee og Gittu var kröftugur frá byrjun og skiptust þær á að sækja, Gitte var með frumkvæðið allan bardagann og fór svo að hún landaði sigri 4-2.  Var það mat viðstaddra að þessi viðureign hafi verðið sú besta sem sést hefur hér á landi.

Að móti loknu voru þau Lonni Boulesnane, Frakklandi, og Gitte Brunstad, Noregi, valin bestu keppendur mótsins.

Einnig var keppt í yngri flokkum á mótinu voru helstu sigurvegarar eftirfarandi:

Kata Youth kvenna; Ronja Halldórsdóttir, KFR
Kata Youth karla; Tómas Pálmar Tómsson, Breiðablik
Kata cadet kvenna; Sigríður Hagalín Pétursdóttir, KFR
Kata cadet Karla; Viktor Steinn Sighvatsson, Fjölnir
Kata Junior kvenna; Laufey Lind Sigþórsdóttir, Breiðablik
Kata Junior karla; Aron Anh Ky Huynh, ÍR
Kumite youth   kvenna; Embla Kjartansdottir, Fylkir
Kumite youth -55 kg kk; Gabriel Andri Guðmundsson, Fylkir
Kumite youth +55 kg karla; Máni Hákonarson, UMFA
Kumite cadet kvenna; Iveta Ivanova, Fylkir
Kumite cadet karla; Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir
Kumite junior kvk; Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylkir
Kumite junior karla; Máni Karl Guðmundsson, Fylkir

Sigurvegarar í yngri flokkum á Reykjavíkurleikunum í karate.
Sigurvegarar í yngri flokkum á Reykjavíkurleikunum í karate. Þorsteinn Yngvi Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert