Andri og Aldís skylmingameistarar

Aldís Edda og Þórdís Ylfa kepptu til úrslita í kvennaflokki.
Aldís Edda og Þórdís Ylfa kepptu til úrslita í kvennaflokki. Sportmyndir.is

Skylmingakeppni WOW Reykjavik International Games fór fram í Skylmingamiðstöðinni á Laugardalsvelli um helgina. Flest af besta skylmingafólki landsins tók þátt ásamt erlendum gestum frá sex löndum.

Í karlaflokki sigraði Andri Nikolaysson Mateev. Hann sigraði í úrslitaeinvíginu Gunnar Egil Ágústsson 15-7. Andri sigraði einnig í keppni í U18-flokknum.

Í kvennaflokki sigraði Aldís Edda Ingvarsdóttir. Í úrslitaeinvíginu mætti hún Þórdísi Ylfu Viðarsdóttur og sigraði 15-10.

Úrslit:

Karlaflokkur
1. Andri Nikolaysson Mateev, ISL
2. Gunnar Egill Ágústsson, ISL
3. Franklín Kristjánsson, ISL
3. Atli Sigurðsson, ISL 

Kvennaflokkur
1. Aldís Edda Ingvarsdóttir, ISL
2. Þórdís Ylfa Viðarsdóttir, ISL 
3. Giedre Razgute, LTU
3. Vanya Dimova, BUL

Andri og Gunnar Egill kepptu til úrslita í karlaflokki.
Andri og Gunnar Egill kepptu til úrslita í karlaflokki. Sportmyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert