Guðni vinsæll

Forsetinn gaf sér góðan tíma til að ræða málin við …
Forsetinn gaf sér góðan tíma til að ræða málin við unga sem aldna. Anna Lilja Sigurðardóttir

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var viðstaddur lokahátíð WOW Reykjavik International Games í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið. Honum var fagnað vel þegar hann gekk í salinn og að dagskrá lokinni gaf hann sér góðan tíma til að spjalla við íþróttafólk, skipuleggjendur og aðra gesti. Guðni var mjög vinsæll og fékk fjöldinn allur af íþróttafólki, bæði innlendu og erlendu, mynd af sér með forsetanum.

Sjá einnig: 10. leikunum lokið

Guðni með sigurvegurum í badmintonkeppni unglinga, Bartal Poulsen frá Færeyjum …
Guðni með sigurvegurum í badmintonkeppni unglinga, Bartal Poulsen frá Færeyjum og Hörpu Hilmisdóttur úr Badmintonfélagi Hafnarfjarðar. Sportmyndir.is
Guðni flutti skemmtilega ræðu þar sem hann hvatti íþróttafólkið og …
Guðni flutti skemmtilega ræðu þar sem hann hvatti íþróttafólkið og aðstandendur þess til dáða. Sportmyndir.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert