Eru bananarnir of grænir?
Bananar eru sannkölluð kóngafæða og frekar auðveldir í meðförum. Það þarf samt að verja bananana fyrir kulda og hnjaski. Banani sem fer beint ofan í íþróttatöskuna getur fljótt orðið að mauki og betra að hafa hann í hörðu íláti eins og til dæmis stóru nestisboxi. Ef banani er geymdur í kæli verður hann líka fljótt svartur og ókræsilegur.
Epli í bananapokann
Algengt vandamál er að þegar mann langar í banana, þá reynast bananarnir á heimilinu ekki nógu þroskaðir, eru of grænir og harðir. Gott húsráð er að setja bananana í bréfpoka og eitt heilt epli með. Epli gefa frá sér sérstaka gastegund sem verður til þess að bananarnir þroskast hraðar. Pokann á að geyma á hlýjum og þurrum stað og síðan kíkja á innihaldið næsta dag. Oftar en ekki eru bananarnir þá orðnir fallega gulir og þroskaðir, en grænustu bananarnir gætu þurft lengri tíma.Af þessum sökum þarf líka að gæta þess að geyma banana og epli (og suma aðra ávexti og grænmeti) ekki saman, nema sóst sé eftir að bananarnir þroskist hratt.
Berin eru viðkvæm
Það getur líka verið vandasamt að geyma ber. Jarðarber eru sérstaklega viðkvæm og þarf fyrir það fyrsta að gæta þess að velja berin mjög vandlega. Hægt er að gaumgæfa berin vel í versluninni og velja þá öskju sem er með fagurrauðum berjum og forðast öskjur þar sem berin eru farin að verða mjúk og jafnvel farin að mygla. Gott ráð er að skoða hvort mikill safi er á botni öskjunnar því það er til marks um að einhver ber séu farin að skemmast.Borða þarf jarðarberin fljótlega eftir að þau eru keypt því þau skemmast fljótt. Það á ekki að þvo berin fyrr en rétt fyrir átu (oft eru þau húðuð með efnum sem varna skemmdum), en ef geyma þarf berin á að geyma þau í lokuðu íláti í kæli og setja örk af eldhúspappír á botninn. Þannig geta þau enst í 2-3 daga.
Ávextirnir gaumgæfðir
Það gildir um alla ávexti að það þarf að velja þá vandlega, leita eftir skemmdum, dældum og mjúkum blettum. En jafnvel ávextir sem eru orðnir gamlir og kannski ekki kræsilegir til átu geta samt dugað vel í drykkjarblöndur. Það er um að gera að skella þreyttum ávöxtum í blandarann eða þá í frysti og nota síðar, en ávextir með myglu fara vitaskuld beint í ruslið.Flest grænmeti og ávextir geymast best í kæli og á þá að setja í ávaxta- og grænmetisskúffuna. Hafa verður hugfast að óþroskaðir ávextir þroskast hægar í kælinum og skemmdir ávextir smita hratt út frá sér og þarf að fjarlægja strax. Kæling getur líka stytt geymslutíma tómata, melóna og sítrusávaxta og mörgum þykir kælingin líka hafa áhrif á bragðgæðin og geyma því við stofuhita.
Loks má auðvitað ekki gleyma að skola allt grænmeti og ávexti vel og vandlega fyrir neyslu.







