Hvaða skóli gerir besta myndbandið?

Íþróttir eru gott myndefni en það getur verið snúið að ná rétta augnablikinu. stækka

Íþróttir eru gott myndefni en það getur verið snúið að ná rétta augnablikinu.

Í tilefni af Skólahreysti MS 2010 er efnt til spennandi myndbandssamkeppni í samstarfi við Sense, Canon og Mbl.is. „Hver skóli getur sent í keppnina stutt myndband þar sem kynnt er keppnisliðið, skólinn eða íþróttastarf nemenda,“ segir Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon hjá Sense. Nánari upplýsingar s.s. um lengd, skilasnið og skilafrest verður að finna á Skólahreystivef Mbl.is en dómnefnd verður skipuð fulltrúum frá Sense, Mbl.is og Skólahreysti MS sem velja sigurmyndbandið.“

Líflegt og skemmtilegt

Til mikils er að vinna því skólinn sem sendir besta myndbandið fær að launum Canon LEGRIA HF200-upptökuvél að verðmæti 150.000 kr. „Þetta er háskerpu-upptökuvél og tekur upp Full HD-efni beint á SDHC-minniskort sem gerir mjög auðvelt að senda efni á vini eða beint á vefinn. Hún er með 15x Optical Canon HD-aðdráttarlinsu og öflugum örgjörva svo vélin skilar mestu myndgæðum.“

Halldór segir aðstandendur keppninnar einkum á höttunum eftir skemmtilegum og líflegum myndböndum þar sem vandað sé til verks. „Þátttakendur fá listrænt frelsi til að gera sitt besta og sigurmyndbandið verður sýnt á Skólahreystivef Mbl.is sem fer í loftið í þessari viku,“ útskýrir Halldór.

Orðið hluti af skólastarfinu

Að sögn Halldórs er mjög spennandi að sjá þá tækniþróun sem orðið hefur í skólum landsins, og víða að nemendur hafi aðgang að vönduðum tækjabúnaði til að spreyta sig á kvikmyndagerð. „Í öðrum samkeppnum sem Sense og Canon hafa staðið höfum við séð mörg skemmtileg myndbönd og ljósmyndir berast frá ungum krökkum,“ segir hann og bætir við að aðgangur að góðum tækjabúnaði skapi vafalítið færa kvikmyndagerðarmenn og ljósmyndara framtíðarinnar. „Það er auðvitað besti kosturinn við stafrænu tæknina að maður getur tekið upp að vild og prófað sig áfram endalaust og lært að taka betri og betri myndir og myndbönd. Vandaðar vélar eins og Canon HD-upptökuvélarnar bjóða líka upp á stillingar sem skila mjög fagmannlegri mynd, aukinni skerpu í smáatriðum, mjúkum hreyfingum og fallegri litum, svo að útkoman sem krakkar ná í skólanum eða heima getur orðið mjög flott með réttu tækjunum.“

Nota tæknina

Loks segir Halldór skemmtilega vídd hafa bæst í íþrótta- og skólastarfið þar sem ljósmynda- og upptökutæknin hefur verið nýtt. „Mörg börn og unglingar setja flott myndskeið af sér á Youtube eða Facebook, til dæmis að gera brögð á hjólabretti eða eitthvað skemmtilegt í skólanum, og skólarnir sjálfir eru að nota samskiptamiðlana til að miðla myndum og myndböndum úr skólalífinu til nemenda og foreldra,“ segir hann.

„Þar sem þróunin er lengst á veg komin stendur nemendum jafnvel til boða að taka áfanga í kvikmyndagerð og ljósmyndun, og gaman að sjá að oft eru krakkarnir með mjög skýrar óskir og góðar hugmyndir um hvaða tæki skólinn þurfi að kaupa. Til dæmis hafa fulltrúar skóla samband við okkur og biðja um ákveðnar Canon-upptökuvélar og jafnvel ákveðnar EOS-myndavélar sem nemendur vilja frekar í kvikmyndagerðina.“

Halldór segir að þróunin á upptökueiginleikum í svokölluðum D-SLR-myndavélum sé einmitt afar spennandi. ,,Canon býður t.d. upp á háskerpuvídeó í EOS-myndavélum sem eru með útskiptalegum linsum. Þannig eru í boði EOS-vélar á borð við EOS 500D, EOS 550D, EOS 7D, EOS 5D Mark II og EOS-1D Mark IV sem taka upp Full HD-vídeó sem er frábær valkostur fyrir áhuga- og atvinnuljósmyndara sem og kvikmyndagerðarmenn,“ útskýrir hann. „Þarna geta notendur nýtt sér fjöldann allan af útskiptalegum linsum sem henta fyrir ákveðin skilyrði og verkefni og við sjáum efni úr Canon EOS-vélum meðal annars í Mbl sjónvarpi, í sjónvarpsþáttum sem og í auglýsingum. Ákveðnar EOS-myndavélar með Full HD eru með veljanlegan rammafjölda sem hægt er að stilla eftir því hvort taka eigi upp t.d. íþróttaviðburð eða viðtal.“

Hvernig á að taka betri myndbönd?

Halldór segir næmt auga og góða hugmynd vera lykilinn að bæði góðu myndbandi og góðri ljósmynd, en einnig skipti máli að nota vandaðan búnað. Hann bætir við að mikilvægt sé að fikta, gera tilraunir með alls kyns stillingar og fítusa, og læra þannig að nýta sér tæknina til fullnustu.

„Mjög margir nota ekki alla tæknina sem upptökuvélarnar og myndavélarnar bjóða upp á og gætu verið að fá miklu meira út úr fjárfestingunni. Varðandi ljósmyndaþáttinn þá bjóðum við upp á Canon EOS byrjendanámskeið og hafa margir fengið nýja sýn á myndavélina sína og ljósmyndun í heild sinni eftir að hafa sótt námskeið hjá okkur,“ segir Halldór.

Smellið hér til að senda inn myndband.

Reglur myndbandssamkeppninnar er að finna hér.

Halldór Jón Garðarsson

Halldór Jón Garðarsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is