Íþróttir
|
Skólahreysti
| Morgunblaðið
| 3.3.2010
| 20:00
| Uppfært
20:27
Jarðarberjabomba
Að búa til bragðgóða og holla rétti þarf alls ekki að taka mikinn tíma. Þessi uppskrift að gómsætum jarðarberja- og bananahristingi getur hæglega komið í staðinn fyrir bragðaref eða heilan poka af nammi.
Jarðarberjabomba
2 dl mjólk (má einnig nota hrísgrjónamjólk eða möndlumjólk)
1-2 bananar
3 dl frosin jarðarber (má nota aðra frosna ávexti eftir smekk)
Aðferð: Setjið mjólk og banana í blandara og maukið saman. Bætið svo berjunum smátt og smátt í þangað til blandan er orðin það þykk að blandarinn getur ekki meira. Berið fram strax annars skilur drykkurinn sig. Ef einhver afgangur er af bombunni (sem er samt hæpið) er hægt að frysta hann og nota sem ís.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







