Skólinn er allur undirlagður
Jóhanna Jónsdóttir íþróttakennari í Árbæjarskóla og Ragnar Geir Hilmarsson stærðfræðikennari. Árni Sæberg
Margir vilja taka þátt
Það má heyra á Ragnari að mikil stemmning skapast í skólanum í kringum keppnina. „Sem dæmi mættu um 50 manns í úrtak hjá okkur. Það eru rúmlega 350 nemendur við unglingadeildina svo þetta reyndist vera um það bil 1/7 nemenda sem kom til að spreyta sig,“ segir hann. Oftar en ekki koma nemendurnir líka skemmtilega á óvart: „Í fyrra kom til dæmis fram nemandi sem við vissum ekki að væri mikið í íþróttum. Hann hafði verið í klifri en var hættur en mætti reglulega í ræktina. Hann fékk rosalegan áhuga á þessari keppni og setti stefnuna á að komast í liðið og æfði sig aukalega. Hann endaði síðan á að ná besta tímanum á hraðabrautinni þegar forkeppnin fór fram í Reykjavík. Hann var ótrúlega snöggur og vakti mikla athygli með frammistöðu sinni.“Öflugt stuðningslið
Áhuginn á Skólahreysti er verulegur og magnast mjög í aðdraganda keppninnar. „Við auglýsum á upplýsingaskjám í skólanum og nemendur sjálfir ganga í stofur og auglýsa keppnina. Árangurinn lét ekki á sér standa í fyrra og yfir 100 nemendur mættu í appelsínugulum einkennislit skólans til að styðja liðið sitt.“Ragnar segir nemendaráð skólans öflugt og það hafi í fyrra tekið upp hjá sjálfu sér að halda utan um stuðningsmannahópinn. „Mjög virkir krakkar eru í nemendaráðinu í vetur og munu örugglega gera það sama núna,“ segir hann, en Árbæjarskóli fær að sýna sig og sanna í undankeppni í Reykjavík í þessari viku. „Við tökum þessa viku með trompi með æsispennandi keppni, sterkum keppendum og kröftugu stuðningsliði sem lætur í sér heyra, og strax í kjölfarið tekur við árshátíðarvikan.“
Duglegir námsmenn
Að sögn Ragnars leikur enginn vafi á uppeldis- og forvarnagildi íþrótta barna. „Oftar en ekki eru krakkarnir sem leggja sig fram í íþróttum einnig að leggja sig fram í náminu. Þetta er duglegt fólk sem hefur lært að nota tímann vel. Þetta á í raun við um öll börn sem stunda einhverjar tómstundir, hvort sem það er í íþróttum, tónlistarnámi eða öðru,“ segir hann. „Þegar upp er staðið hefur það mikið að segja að frítíma þessara barna er varið með skipulögðum hætti í uppbyggilega og jákvæða iðju.“Ætla að gera sitt besta
En hvernig líst Ragnari svo á lið Árbæjarskóla í Skólahreysti í ár? „Það er erfitt að segja til um hvernig við stöndum samanborið við aðra skóla, en ég veit að við erum með hörkuduglega krakka sem munu leggja sig alla fram, fram á síðustu stundu,“ segir hann. „Við vitum líka að hinir skólarnir munu án efa tefla fram mjög sterkum liðum, og það verður bara skemmtilegt að takast á við þau í keppni. Vitaskuld stefnum við alltaf á sigur, en mestu skiptir auðvitað að vera með og gera sitt besta.“ai@mbl.is
Skólahreysti verður valáfangi
Unglingahópurinn sem þjálfar sig fyrir Skólahreysti hittist að jafnaði einu sinni í viku í allan vetur og æfir sig fyrir keppnina en öll stunda þau þessa þjálfun til viðbótar við aðrar íþróttir. „Skólinn á útbúnað til að æfa Skólahreystiþrautir eins og dýfur og lyftur og við útbúum einnig sérstakar æfingar fyrir hraðabrautina,“ segir Ragnar. „Við höfum kíkt til snillinganna í Sporthúsinu í Kópavogi þrisvar í vetur en þeir eru með ágæta braut. Vorum meira þar í fyrra en kreppuástandið kom í veg fyrir fleiri æfingar þar í ár.“Þetta hafa nemendur og kennarar lagt á sig til viðbótar við skipulagt skólastarf fram til þessa. „En á næsta ári munum við stíga það skref að gera Skólahreysti að valgrein innan skólans fyrir unglingadeildina. Nemendurnir geta þá valið sér Skólahreysti sem fag og verður eðlilegur liður skipulagður inn í skóladaginn þeirra.“







