Sló Íslandsmetið í gamni
Svanhildur Sigurjónsdóttir hefur yndi af að æfa fimleika og hefur orðið fyrir miklum áhrifum frá Skólahreysti. Móðir hennar Eva fylgist með. Kristinn Ingvarsson
Fáir vita að Íslandsmethafinn í þessari grein er þó ekki einn af keppendunum fræknu í Skólahreysti, heldur sjö ára stelpa úr Reykjavík.
Héldu keppni í fimleikatíma
Svanhildur Ýr Sigurjónsdóttir æfir fimleika með Björk og gerði sér lítið fyrir þegar haldin var óformleg keppni í fimleikaskólanum og hékk í heilar 508 sekúndur í hangikeppni, eins og hún kallar æfinguna. „Í fimleikatímum erum við að fara upp kaðla, erum stundum á tvíslá, gerum kollhnísa og handstöður,“ segir Svanhildur og bætir við að það erfiðasta sem hún kann að gera séu handstöður á slá.Hún þakkar það því að hafa verið dugleg á æfingum að henni tókst að slá Íslandsmetið, en Svanhildur hefur æft fimleika frá því hún var 4 ára (að verða fimm) og þykir tvennt skemmtilegast í fimleikum: að hanga og gera handstöður, en hún er líka rosagóð í að klífa upp kaðalinn.
Með brennandi áhuga
Eva Sigurbjörnsdóttir, mamma Svanhildar, segir dóttur sína mjög áhugasama um Skólahreysti. „Þegar hún sá keppnina fyrst í sjónvarpi var hún föst við skjáinn og fannst þetta rosalega sniðugt. Í kjölfarið fór hún að vilja láta taka á sér tímann í alls kyns æfingum og þrautabrautum og langar að verða best í öllu,“ segir Eva um þennan káta og klára sjö ára orkubolta. „Mér finnst skemmtilegast að horfa á krakkana í þrautunum og sérstaklega í hangikeppni,“ bætir Svanhildur við.Skólahreysti fyrir yngri börn?
Eva er ánægð að sjá hvað Skólahreysti hefur vakið mikinn áhuga hjá dóttur hennar. „Við ákváðum síðan í sameiningu að senda bréf til skipuleggjenda keppninnar, og leggja til að boðið yrði upp á skólahreysti frá 7 ára aldri,“ segir hún. „Það væri til dæmis gaman að skólar myndu skipuleggja skólahreystidag þar sem allir gætu fengið að spreyta sig á braut við sitt hæfi.“Sjálf segist Eva ekki hafa verið mikil íþróttamanneskja í barnæsku, en það sé henni mikils virði að sjá hvað Svanhildur hefur brennandi áhuga á íþróttum. „Þetta getur vitaskuld verið nokkuð dýrt, en vel þess virði og eitthvað það besta sem við getum gert fyrir börnin okkar að halda að þeim hollri hreyfingu og leyfa þeim að stunda íþróttir eins og þau langar,“ segir hún.







