Þakið við það að rifna af íþróttahúsinu á Egilsstöðum

Gríðarleg stemning var á áhorfendapöllum íþróttahússins á Egilsstöðum. stækka

Gríðarleg stemning var á áhorfendapöllum íþróttahússins á Egilsstöðum.

Morgunblaðið Eftir Aðalstein Sigurðarson

Mikla spennu og eftivæntingu mátti lesa úr hverju andliti á grunnskólakrökkunum sem komu saman í Íþróttahúsinu á Egilsstöðum í gær. Þar var að fara að hefjast 4. undankeppnin í Skólahreysti, hinni vinsælu grunnskólakeppni. Mátti sjá þar hvítklædda keppendur og stuðningsmenn í öllum regnbogans litum, með skilti og trommur til að gera stemninguna engu líka, og til að styðja við bakið á sínum skóla.

Að þessu sinni mættu 11 skólalið af öllu Austurlandi; frá Nesskóla í Neskaupstað, Egilsstaðaskóla, Fellaskóla í Fellabæ, Vopnafjarðarskóla, grunnskóla Hornafjarðar, grunnskóla Reyðarfjarðar, grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, grunnskólanum á Stöðvarfirði, grunnskóla Breiðdalsvíkur, grunnskóla Djúpavogs og grunnskólanum á Eskifirði.

Eins og á rokktónleikum

Mikil stemning myndaðist í húsinu sem var fullt út úr dyrum strax í upphafi. Voru lætin svo mikil á meðan á keppninni stóð að ætla mætti að þakið myndi rifna af, rétt eins og um rokktónleika væri að ræða. Gekk keppnin hratt fyrir sig og greinilegt að góð skipulagning er að baki þessari undankeppni sem haldin er víða um land, en Skólahreysti lýkur svo með viðamikilli úrslitakeppni í Laugardagshöll í lok apríl.

Engin Íslandsmet féllu á Egilsstöðum í gær en oft var mjótt á munum og er greinilegt að krakkarnir hafa lagt mikið á sig og æft vel fyrir keppnina. Þeir komu ákveðnir til leiks með það að markmiði að gera sitt besta. Sigurvegarar dagsins voru krakkarnir í Egilsstaðaskóla með 59 stig. Þeir tryggðu sér því keppnisrétt í aðalkeppninni. Í öðru sæti var svo Vopnafjarðarskóli með 49 stig og í því þriðja var grunnskóli Breiðdalsvíkur með 44,5 stig.

Hefði mátt æfa meira

Aron Björgólfsson keppti fyrir grunnskólann á Stöðvarfirði og var ekki alveg sáttur við árangur sinn í keppninni.

„Ég hefði mátt æfa meira,“ sagði Aron en undirbúningur hjá honum hófst fyrir tveimur vikum og æfingarnar voru einungis þrjár. Aron er í 8. bekk og er í fyrsta sinn í Skólahreysti. Sagði hann að það hefði verið rosalega gaman að taka þátt í þessu og hann ætlaði að æfa mikið fyrir næsta ár og reyna að fá að vera aftur með. „Á næsta ári ætla ég klárlega að vinna,“ sagði Aron áður en hann dreif sig í rútu með skólafélögum sínum til Stöðvarfjarðar.

Stífar æfingar skila sér

Rannveig Steinbjörg Róbertsdóttir er í 8. bekk í grunnskóla Breiðdalsvíkur. Hún var mjög ánægð með árangur dagsins og þá sérstaklega með hreystigripið sem hún sigraði í á einstaklega góðum tíma. Einnig var skóli hennar, grunnskóli Breiðdalsvíkur, í þriðja sæti í liðakeppni dagsins. Rannveig sagði að undirbúningur í skólanum hefði staðið yfir síðan fyrir jól, og æft hefði verið tvisvar í viku síðan þá. Þó að Rannveig hafi verið ánægð með árangurinn ætlar hún að undirbúa sig vel fyrir næsta ár og stefnir að þátttöku þá. Að sjálfsögðu verður stefnt á gullið.
Rannveig Steinbjörg Róbertsdóttir sigraði í sinni grein.

Rannveig Steinbjörg Róbertsdóttir sigraði í sinni grein.

Aron Björgólfsson ætlar að æfa meira fyrir keppnina næsta ár.

Aron Björgólfsson ætlar að æfa meira fyrir keppnina næsta ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is