Frábærir stuðningsmenn

Nemendur Valhúsaskóla stækka

Nemendur Valhúsaskóla ljósmynd Brjánn Baldursson

Morgunblaðið Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Stuðningsmenn Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi vöktu sérstaka athygli á fyrsta keppnisdegi Skólahreysti í ár, annars vegar fyrir fjöldann og hins vegar fyrir samræmdan klæðaburð og veifur.

Skólahreysti er liðakeppni grunnskóla í kraftagreinum og hraðaþraut. Þriðji keppnisdagur keppninnar í ár verður á Akureyri á morgun og sem fyrr leggja skipuleggjendur hennar mikið upp úr stuðningi áhorfenda við keppendur.

Helmingur keppninnar

„Stuðningsmennirnir eru helmingur keppninnar,“ segir Lára B. Helgadóttir og bætir við að öflug stuðningsmannalið mæti með keppnisliðum sínum og styðji þau með köllum, spjöldum, trommum og alls kyns dóti.

Allir eins

Metta Helgadóttir, íþróttakennari í Valhúsaskóla, segir að fyrir margt löngu hafi hún fengið það hlutverk að halda utan um öskudagsfjör í skólanum. Að þessu sinni hafi hún skipulagt ratleik um skólann og notað tækifærið til þess að láta krakkana útbúa allt dótið fyrir þátttökuna í Skólahreysti í leiðinni. „Ég undirvann þetta og setti svo kennarana í hlutverk á stöðvunum,“ segir hún.

Að sögn Mettu hafa nemendur Valhúsaskóla aldrei átt sérstaka skólaboli en nú var ákveðið að breyta því. Allt stuðningsmannaliðið var í eins bláum bolum með Való skrifað framan á, sköpunarverk eins nemandans. Ennfremur voru nemendur með heimagert hálsskraut þar sem á stóð „áfram“ og hippabönd um hárið. Auk þess mætti stuðningsliðið með stóran borða og segir Metta að heill sunnudagur hafi farið í gerð hans.

Í Valhúsaskóla eru tæplega 300 nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Þegar keppnin fór fram voru allir nemendur 8. bekkjar á leið í fermingarfræðslu og voru því fjarri góðu gamni, en um 100 nemendur studdu sitt fólk í Austurbergi. „Hópurinn var til fyrirmyndar,“ segir Metta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is