Tápmiklir norðanmenn

Ágúst Daníel Karlesson úr Þelamerkurskóla. stækka

Ágúst Daníel Karlesson úr Þelamerkurskóla. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Morgunblaðið Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is
Giljaskóli á Akureyri og Dalvíkurskóli tryggðu sér í gær sæti í úrslitum Skólahreysti, þegar norðanmenn kepptu í íþróttahöllinni á Akureyri. Stemningin var rafmögnuð og baráttan æsispennandi.

Keppt var í tveimur riðlum; fyrst reyndu með sér skólar víða af Norðurlandi en síðan grunnskólarnir á Akureyri auk tveggja í næsta nágrenni og Húsvíkinga.

Mikill fjöldi stuðningsmanna var mættur í Höllina þegar fyrri riðillinn hófst klukkan þrjú og hver studdi dyggilega við bakið á sínum mönnum. Siglfirðingar byrjuðu mjög vel og unnu örugglega fyrstu grein, upphífingar. Þeir sigruðu einnig í armbeygjukeppninni – með gríðarlegum yfirburðum reyndar, þar sem Guðrún Ósk Gestsdóttir gerði 58 armbeygjur. Siglfirðingarnir voru líka hlutskarpastir í dýfum, urðu í þriðja sæti í hreystigreip en brást síðan illa bogalistin í lokagreininni, hraðaþrautinni; náðu aðeins áttunda sæti, fengu sex stig og duttu niður í þriðja sæti í heildarstigakeppninni. Varmahlíðarskóli skaust þá upp í annað sæti með sigri í hraðaþrautinni.

Krakkarnir frá Dalvík sigldu hægt og bítandi í gegnum það öldurót sem keppnin er; fulltrúi Dalvíkur varð í þriðja sæti í upphífingum, fimmta sæti í armbeygjum, öðru sæti í dýfum, Dalvíkingur varð hlutskarpastur í hreystigreip og Dalvíkurdúettinn varð í þriðja sæti í hraðaþrautinni.

Þegar upp var staðið hafði Dalvíkurskóli því alls 48 stig, Varmahlíðarskóli 47 og Grunnskóli Siglufjarðar 44. Síðan kom Árskóli með 39,5 stig, Grunnskólinn í Ólafsfirði hlaut 35,5, Reykjahlíðarskóli 35, Grenivíkurskóli 25,5, Grunnskólinn á Hofsósi 22, Húnavallaskóli 18,5 og Grunnskólinn á Blönduósi rak lestina með 15 stig.

Hafi áhorfendabekkirnir verið þétt setnir fyrr um daginn voru þeir troðfullir eins og nærri má geta þegar heimamenn mættu til leiks klukkan sex síðdegis.

Þelamerkurskóli tók forystuna eftir fyrstu grein, upphífingar, Borgarhólsskóli á Húsavík varð annar og Giljaskóli þriðji.

Fulltrúi Glerárskóla, Guðrún Jóna Þrastardóttir gerði 58 armbeygjur eins og Siglufjarðarmærin fyrr um daginn og sigraði en Snjólaug Heimisdóttir úr Giljaskóla gerði 56 og varð önnur. Auður Kristín Pétursdóttir úr Síðuskóla gerði 52.

Sigfús Elvar Vatnsdal úr Giljaskóla var hlutskarpastur í dýfum, Brekkuskóli varð í öðru sæti og Þelamerkurskóli þriðji. Í hreystigreip hélt Auður Kristín Pétursdóttir úr Síðuskóla lengst út, Jónína Rún Agnarsdóttir úr Borgarhólsskóla varð önnur og Freydís Björk Kjartansdóttir þriðja.

Eftir fjórar greinar hafði Giljaskóli 30 stig í fyrsta sæti en Þelamerkurskóli var með 26. Síðuskóli var í 5. sæti með 20,5 stig.

Allt var á suðupunkti þegar hraðaþrautin fór fram og munurinn gat ekki orðið minni. Lið Giljaskóla fór brautina á 2 mín. og 36 sek., lið Brekkuskóla og Lundarskóla bæði á 2,35 og Síðuskóli fékk besta tímann, 2,34 mín. Það var ekki fyrr en kynnirinn, Jón Jósep Snæbjörnsson, hafði talið upp liðin sem urðu í þriðja og öðru sæti að fulltrúar Giljaskóla þorðu að setja upp sigurbrosið; svo jöfn var keppnin.

Mokar skít og er duglegur í sauðburðinum

„Ég moka skít og er duglegur í sauðburðinum,“ sagði Jón Bjarni Hjaltason, einn sigurvegaranna úr Dalvíkurskóla, þegar Morgunblaðið ræddi við hann eftir fyrri riðil gærdagsins.

Jón Bjarni býr á Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal og segist vera duglegur að æfa sig á „krossaranum“, mótorhjólinu sínu, auk þess sem hann þakkar mikilli hreyfingu við almenn sveitastörf það hve hraustur hann er.

Í liði Dalvíkurskóla voru, auk Jóns Bjarna, Stefanía Aradóttir, Anna Kristín Friðriksdótrir og Hilmar Daníelsson.

„Ég var líka í liðinu í fyrra, þá vorum við í fyrsta sæti en klikkuðum í hraðabrautinni í lokin. Við gerðum okkur því vonir um að vinna núna og það er ánægjulegt að skólinn er kominn í úrslit í fyrsta skipti,“ sagði Jón Bjarni.

Ása Fönn Friðbjarnardóttir, kennari krakkanna, segir mjög öflugt íþróttastarf á Dalvík, börn í bænum almennt dugleg á þeim vettvangi og séu vel á sig komin.

Stefndum að sjálfsögðu að sigri

„Þetta var rosalega jafnt allan tímann. Við vissum ekki að við hefðum unnið fyrr en það var tilkynnt, sagði Snjólaug Heimisdóttir við Morgunblaðið í gær, en hún var einn fjórmenninganna í sigurliði Giljaskóla.

Með Snjólaugu í liðinu voru Númi Kárason, Sigfús Elvar Vatnsdal og Álfhildur Rögn Gunnarsdótir.

Einvarður Jóhannsson íþróttakennari í Giljaskóla var stoltur af sínum krökkum og sagði þau mjög áhugasöm um mótið. „Við fórum nokkrum sinnum saman í ræktina og stefndum að sjálfsögðu að því að vinna,“ sagði Snjólaug.

Giljaskóli hlaut alls 42 stig, Síðuskóli 38,5, Lundarskóli og Brekkuskóli 34 hvor, Borgarhólsskóli 31,5, Glerárskóli 29, Þelamerkurskóli 28, Oddeyrarskóli 17,5 og Hrafnagilsskóli 15,5.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is