Spennan í Skólahreysti stigmagnast í keppni síðustu riðla í Smáranum

Andrés Guðmundsson fylgist með að útfærslan sé rétt. stækka

Andrés Guðmundsson fylgist með að útfærslan sé rétt. Skapti Hallgrímsson

Morgunblaðið Eftir Steinþór Guðbjartsson

Riðlakeppninni í Skólahreysti lýkur í Smáranum í Kópavogi í dag og þá verður ljóst hvaða 12 skólalið keppa í úrslitakeppninni í Laugardalshöll 29. apríl.

Skólahreysti fór fyrst fram 2005 og hafa Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir séð um keppnina frá upphafi. Að þessu sinni var liðunum skipt í 10 riðla eftir búsetu og fara sigurvegarar riðlanna í úrslit ásamt þeim tveimur liðum sem ná besta árangri í 2. sæti. Þar sem fjöldi liða í riðlunum er misjafn er ekki hægt að miða við stigin í riðlakeppninni heldur eru öll liðin í 2. sæti sett saman í pott og frammistaðan reiknuð út frá sameiginlegum grunni. „Við uppreiknum stigin í nýrri stigatöflu,“ segir Lára.

Fimm skólar komnir áfram

Eins og staðan er núna hafa fimm skólar tryggt sér sæti í úrslitum. Það eru Ölduselsskóli, Austurbæjarskóli, Egilsstaðaskóli, Dalvíkurskóli og Giljaskóli. Kl. 13 hefst keppni í Vesturlandsriðli og Vestfjarðariðli, kl. 16 hefja keppni skólar í Kópavogi, Mosfellsbæ, Garðabæ, á Álftanesi og Kjalarnesi og kl. 19 mæta til leiks lið úr Hafnarfirði og af Reykjanesi.

Þegar keppnin byrjaði setti veður strik í reikninginn og lið frá Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarklaustri komust ekki á keppnisstað. Þessi lið keppa með Kópavogsriðlinum kl. 16 og árangur þeirra verður skráður með Suðurlandsriðli. Grunnskólinn á Hellu varð í 1. sæti en það getur eðlilega breyst. Það kemur því ekki í ljós fyrr en eftir keppni í 9. riðli hver verður sigurvegari í 1. riðli.

Samfelld skemmtun

Lára segir að keppnin hafi gengið hnökralaust og aðeins ófærðin fyrsta keppnisdag hafi ruggað bátnum. Að öðru leyti hafi skemmtunin verið draumur í dós. „Það er svo mikil vakning fyrir Skólahreysti og ekki síst hjá kennurunum,“ segir Lára. „Allir koma vel undirbúnir, allir vita að hverju þeir ganga og allir treysta því að Skólahreysti sé ekki loftbóla heldur komin til að vera.“ Hún bætir við að mikil vinna sé lögð í keppnina í skólunum og ánægjulegt sé að sjá hvað allir séu samstiga.

Skólakerfið er frekar fastmótað og Lára segir að þegar þau hafi byrjað hafi þau fundið fyrir því. „Þetta var eins og að ganga á vegg,“ segir hún og vísar til þess að utanaðkomandi fari ekki inn á svæði skólanna nema með þeirra samþykki. Þau hafi óskað eftir samstarfi, það hafi undið upp á sig og nú sé Skólahreysti snar þáttur í skólastarfinu úti um allt land. „Skólahreysti hefur sannað sig og er orðin föst í sessi,“ segir Lára.

Lára segir að keppnin og allt sem að henni snúi sé samfelld skemmtun. „Krakkarnir eru svo skemmtilegir og duglegir. Það eru aldrei nein vandamál og stuðningurinn er ótrúlegur sem og fjörið. Íþróttahúsin hafa verið troðfull hvert af öðru og spennan er óvenjumikil fyrir síðasta keppnisdaginn í riðlunum. Allir bíða hrikalega spenntir.“

Í hnotskurn
» Skólahreysti er liðakeppni grunnskóla í kraftagreinum og hraðaþraut.
» Keppnin hefur farið fram árlega síðan 2005 að frumkvæði hjónanna Andrésar Guðmundssonar og Láru B. Helgadóttur.
» Fyrsta árið kepptu sex skólalið, en að þessu sinni voru 120 skólar skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri.
» Keppnin er svæðaskipt og er fjögurra manna skólaliðunum skipt í 10 riðla.
Guðrún Ósk Gestsdóttir frá Siglufirði gerði 58 armbeygjur í sinni fjórðu keppni, á Akureyri í ...

Guðrún Ósk Gestsdóttir frá Siglufirði gerði 58 armbeygjur í sinni fjórðu keppni, á Akureyri í síðustu viku. Skapti Hallgrímsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is