Víkingakrakkar að vestan
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is
Keppni fór fram í þremur síðustu riðlum Skólahreysti í Smáranum í Kópavogi í gær. Að þessu sinni kepptu lið skóla af Vesturlandi og Vestfjörðum, Kópavogi, Mosfellsbæ, Garðabæ, Álftanesi og Kjalarnesi, og loks úr Hafnarfirði og af Reykjanesi.
Er blaðamann og ljósmyndara bar að garði skömmu eftir hádegi í gær stóð yfir keppni milli skóla á Vesturlandi og af Vestfjörðum. Keppendur biðu þess spenntir að leikar hæfust og áhorfendabekkir voru þétt setnir að venju. Það var ljóst að í Smárann höfðu margir komið til að styðja sitt fólk, jafnvel þó um langan veg væri að fara í sumum tilfellum.
Skólahreysti fór fyrst fram 2005 og hafa þau Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir haft umsjón með keppninni frá upphafi. Að þessu sinni var liðunum skipt í 10 riðla eftir búsetu og komust sigurvegarar riðlanna í úrslit, ásamt tveimur liðum sem ná besta árangri í 2. sæti. Þar sem ekki keppir hins vegar sami fjöldi í hverjum riðli er ekki miðað við stigin í riðlakeppninni, heldur eru öll liðin sem lenda í 2. sæti sett saman í pott og frammistaðan reiknuð út frá sameiginlegum grunni.
„Hrópin í ykkur skipta öllu“
Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi og gjarnan kenndur við hljómsveitina Í svörtum fötum, lagði krökkunum lífsreglurnar og hvatti keppendur áfram. „Þegar bara tuttugu sekúndur skilja á milli keppenda, eru það hrópin í ykkur sem skipta öllu. Það eru þau sem halda þeim á kaðlinum eftir að allt þrek er þorrið,“ sagði Jónsi og uppskar prufu af kraftmiklu hvatningarópi.Það sýndi sig líka að keppendur áttu hauk í horni þar sem áhorfendur voru. Lituð bönd í hári, samlitir bolir og stríðsrendur í andliti voru meðal þeirra aðferða sem skólarnir notuðu til að auðkenna sig. Blístrur, trommur, skilti, spjöld og jafnvel hænuungi og bolabítur settu einnig sinn svip á keppnina sem var spennandi að vanda. Í Smárann höfðu allir komið til að vinna.
Miklar sviptingar voru enda á stigatöflunni í fyrstu keppnisgreinunum og stundum dugði ein armbeygja eða dýfa í viðbót til að breyta röðinni á töflunni. Endanleg úrslit voru þó þau að Varmalandsskóli í Borgarfirði og Grunnskólinn á Ísafirði komust í hóp þeirra skóla sem taka þátt í úrslitakeppni Skólahreysti.
12 skólar keppa til úrslita í Skólahreysti
Úrslitakeppnin í Skólahreysti fer fram í Laugardalshöll 29. apríl og má búast við fjölda áhorfenda og tilheyrandi hvatningarlátum.Tólf skólar keppa til úrslita og tíu þeirra eru Ölduselsskóli og Austurbæjarskóli í Reykjavík, Egilsstaðaskóli, Dalvíkurskóli, Giljaskóli á Akureyri, Varmalandsskóli í Borgarfirði, Grunnskólinn á Ísafirði, Grunnskólinn á Hellu, Heiðarskóli í Reykjanesbæ og Lindaskóli í Kópavogi, en í dag mun koma í ljós hvaða tveir skólar sem urðu í 2. sæti í riðlakeppnunum komast áfram í úrslitakeppnina.
Betri árangur í armbeygjunum en í fyrra
ANNA María Stefánsdóttir, sem er í 10. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði, lauk armbeygjukeppninni með glæsibrag – 42 armbeygjum og munaði nokkru á henni og öðrum keppendum. „Ég náði að standa mig betur núna,“ sagði Anna María sem einnig tók þátt í Skólahreysti í fyrra. Hún kvaðst þó ekki hafa lagt í sérstakar æfingar fyrir Skólahreystina að þessu sinni.„Við í Ísafjarðarskóla byrjuðum bara að æfa fyrir Skólahreystina svona tveimur vikum fyrir keppnina og síðan fengu þeir nemendur að taka þátt sem náðu bestum árangri,“ sagði Anna María sem æfir sund að staðaldri með sundfélaginu Vestra. Hún samþykkir að það skili sér í góðum styrk í efri hluta líkamans. Hún keppir líka reglulega í sundinu og segist standa sig ágætlega í lauginni.
Anna María naut líka stuðnings sundfélaganna í Smáranum, en þeir komu þangað til að hvetja hana áfram. „Við [sundliðið] erum að fara að keppa hér í bænum á morgun [í dag],“ sagði hún og var rokin aftur út í sal.
Ætlaði að reyna við Íslandsmetið í upphífingum
Alexander Gabríel Guðfinnsson, sem er í 10. bekk Grunnskólans í Borgarnesi, hlaut flest stig í upphífingunum, en hann náði 40 upphífingum og var sæmilega sáttur við þann árangur. „Ég stefndi hærra,“ sagði hann. „Ég hef náð 55 upphífingum og ætlaði að reyna við Íslandsmetið, sem er 57.“ Hann virtist einnig standa sig vel í dýfunum – lauk keppni með 32 dýfur – þó úrslit í þeirri grein lægju ekki fyrir er blaðamaður yfirgaf svæðið.Alexander Gabríel var heldur ekki ósáttur við sinn árangur, en hann tók einnig þátt í fyrra. Þó nokkrar æfingar liggja að baki keppninni að þessu sinni og hefur verið boðið upp á vikulega tíma í Skólahreysti í Grunnskólanum í Borgarnesi. „Það er búið að vera slatti af þreki undanfarið,“ segir hann og bætir við að með því hafi hann að einhverju leyti endurnýjað þrek eftir nýleg veikindi.
Alexander Gabríel æfir sund, líkt og Anna María, og kveðst vera meðalmaður í sundi. En hann æfir hjá Ungmennasambandi Borgarfjarðar og játar að sundið skili sínu er kemur að Skólahreystinni.









