Lið Egilsstaðaskóla æfir á morgnana fyrir skólatíma
Lið Egilsstaðaskóla með sigurlaun eftir riðlakeppnina; Hafsteinn Gunnlaugsson, Stefán Bragi Birgisson, Erla Gunnlaugsdóttir og Jóhanna K.Sigurþórsdóttir
„Það gengur bara mjög vel. Eftir riðlakeppnina hafa krakkarnir verið að undirbúa sig á fullu og af mikilli alvöru fyrir úrslitakeppnina,“ segir Lovísa Hreinsdóttir íþróttakennari við Egilsstaðaskóla. Lið skólans keppir í ár til úrslita í Skólahreysti í fyrsta sinn.
„Þau æfa sig sérstaklega undir keppnina tvisvar til þrisvar í viku. Mæta í íþróttasalinn klukkan hálfátta á morgnana fyrir skóla og byggja sig upp. Það er mikil ákveðni í þessu hjá þeim og dugnaður. Takmarkið er að standa sig vel en fara í úrslitin með gleðina í fyrirrúmi,“ segir Lovísa.
Hún hefur séð um undirbúning ásamt samkennara sínum, Guðjóni Hilmarssyni. „Við höfðum forkeppni innan skólans í nóvember. Þeir sem völdust sem keppendur og varamenn hófu síðan markvissan undirbúning undir keppnina í byrjun janúar. Varamennirnir taka fullan þátt í þjálfuninni og eru tilbúnir að hlaupa í skarðið ef eitthvað bjátar á,“ segir Lovísa.
Styrkur liðsins í hversu jafnt það er
Hún segir styrk liðs Egilsstaðaskóla liggja í því hversu jafnir krakkarnir séu á hreystiþrautirnar. „Það er líka skýringin á því að við komumst áfram úr riðlinum en undanfarin ár höfum við verið í miðjum hópi í okkar riðli.“
Liðið vann Austurlandsriðilinn með 59 stigum og í öðru sæti varð Vopnafjarðarskóli með 49 stig. Keppni um þriðja sætið var jöfn en að lokum kom það í hlut grunnskólans í Breiðdalshreppi sem hlaut 44,5 stig, eða tveimur stigum meira en hvor um sig, grunnskóli Fáskrúðsfjarðar og grunnskóli Hornafjarðar.
Setur skemmtilegan svip á skólastarfið
Lovísa segir að þátttaka í Skólahreysti sé mjög jákvætt fyrir bæði liðið og skólann. Keppnin setji skemmtilegan svip á skólastarfið. „Okkar lið fer í úrslitin í Laugardalshöll með góðu og jákvæðu hugarfari. Þetta er mjög jákvætt fyrir krakkana og við vonum að allir hafi gaman að og mönnum gangi vel,“ segir Lovísa Hreinsdóttir við fréttavef Morgunblaðsins.







