Heiðarskóli hefur titil að verja
Lið Heiðarskóla vann riðil sinn. Á myndinni eru (f.v.) Brynjar Freyr Garðarsson, Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, Unnar Már Unnarsson og Alexía Rós Viktorsdóttir.
„Það gengur fínt, krakkarnir eru duglegir við æfingar og undirbúning fyrir úrslitakeppnina. Þau hafa sett mikla pressu á sig sjálf því við höfum titil að verja,“ segir Helena Ósk Jónsdóttir, íþróttakennari við Heiðarskóla í Reykjanesbæ og stjórnanda liðs skólans í Skólahreysti.
Heiðarskóli fór með sigur af hólmi í Skólahreysti í fyrra og varð í þriðja sæti 2008. Þá hefur skólinn unnið riðlakeppni sína þrjú ár í röð og segir Helena Ósk þessa velgengni hafa stuðlað að auknum metnaði fyrir því að standa sig vel í úrslitunum, sem fram fara í Laugardalshöll 29. apríl.
„Þangað mætum við með öflugt lið og kröftugt stuðningslið. Það er rosalegur áhugi í skólanum fyrir keppninni, ekki bara í unglingadeildinni, heldur yngri deilunum líka. Stuðningsmennirnir fyrir nokkru byrjaðir að undirbúa sig líka,“ segir Helena Ósk.
Hún lofar framtak og áhuga þeirra hjóna, Láru Berglindar Helgadóttur og Andrésar Guðmundssonar, sem stofnuðu á sínum tíma til keppninnar. „Þetta er frábært framtak hjá þeim og er öllum gríðarleg hvatning. Ekki bara unglingunum því yngri krakkarnir vilja líka fá að spreyta sig og vera með,“ segir Helena Ósk, sem valdi lið sitt með forkeppni í Heiðarskóla í nóvember.
Nýta hverja stund til æfinga
Tveir gengu þó úr skaftinu þegar kom að mótum í þeirra íþrótt og fylltu nýir skarð þeirra. „Keppendur okkar stunda allir einhverja íþrótt og í ár æfa þrír af fjórum fótbolta og sá fjórði fimleika. Þeir eru áhugasamir og nýta hverja mínútu til undirbúnings. Styrkur þeirra er að vera jafnvíg á allar þrautirnar.
Ég hef verið að hitta þau og skipuleggja undirbúninginn. Við skreppum öðru hverju í hreystibraut í Sandgerði með þau sem keppa í hraðaþrautunum. Þar er lítil útgáfa af braut með rimlum, rörum og klifurvegg þar sem æfa má tæknina. Hér í skólanum æfa þau sig í köðlum, það eru allar lausar stundir notaðar, meðal annars í frímínútum.“
Enginn úr sigurliði Heiðarskóla frá í fyrra er lengur í skólanum og því um alveg nýtt keppnislið að ræða. Tveir liðsmanna eru í níunda bekk og tveir úr tíunda. „Þetta eru mjög metnaðarfullir krakkar og ég styð við bakið á þeim og hjálpa til að sá metnaður skili sér í góðum árangri.
Sleppir Spánarferð til að einbeita sér að æfingum fyrir úrslitin
Það er til marks um áhugann, að einn liðsmanna okkar, Brynjar Freyr Garðarsson, sleppti fjölskylduferð til Spánar til að geta verið með af krafti. Heimkoma var ráðgerð sama dag og úrslitin fara fram. Hann vildi heldur sleppa ferðinni til að geta einbeitt sér að undirbúningnum og staðið sig sem best í úrslitunum. Það er öllu fórnað til að árangur megi verða sem bestur,“ segir Helena Ósk Jónsdóttir.
Næstu daga verður opnuð hreystibraut við sundlaugar- og fótboltasvæðið í Reykjanesbæ og segist Helena Ósk halda, að þar gæti áhrifa Skólahreysti að einhverju leyti þegar ákveðið var að byggja hana.







