„Ætlum að reyna að halda titlinum“
„Það er álag á okkur því við höfum titil að verja. Við ætlum að gera okkar besta og reyna halda í hann,“ segir Unnar Már Unnarsson sem keppir fyrir Heiðarskóla í Reykjanesbæ í úrslitum Skólahreysti.
„Ég er smá stressaður fyrir þetta en það er bara eðlilegt. Það er mikil stemmning fyrir keppninni í skólanum og það mun fjölmennt stuðningsmannalið fylgja okkur í Laugardalshöll. Við erum ákaft hvött til dáða af samnemendum og kennurum og eiginlega bara öllum. Það er bara mjög jákvætt og fínt en setur á okkur pressu að standa okkur vel.
Allt frá riðlakeppninni höfum við undirbúið okkur vel og ég get lofað því að ég geri miklu betur í úrslitakeppninni en í riðlinum, hef bætt mig það mikið,“ segir Unnar Már.
Hífir sig upp og dýfir á séræfingum í ræktinni
Hann keppir í upphífingum og dýfingum og auk þess að stunda fótboltaæfingar af kappi með Keflavíkurliðinu hefur hann farið í ræktina til séræfinga til undirbúnings úrslitakeppninni í Skólahreysti; æft upphífingar og dýfur af miklum krafti.
Lið Heiðarskóla er alveg nýtt, í því enginn úr sigurliðinu frá í fyrra. Þá gerðu keppendur skólans sér lítið fyrir og settu Íslandsmet í hraðaþraut annars vegar og armbeygjum hins vegar.








