Gamaldags frjálsíþróttaþrek fleytir Varmalandsskóla í úrslit
Varmalandsskóli fagnar sigri í riðli sínum. Á myndinni eru (f.v.) Bjarki Vilhjálmsson, Styrmir Þór Tómasson, Gabríela Birna Jónsdóttir og Fanney Guðjónsdóttir.
„Hópurinn lítur vel út, ég hef undirbúið hann með hörku þrekæfingum, þessu gamla góða frjálsíþróttaþreki eins og við þekkjum það,“ segir Íris Grönfeldt, íþróttakennari Varmalandsskóla í Borgarfirði, um lið skólans sem keppir í úrslitum Skólahreysti.
„Ég var mest hissa að við skyldum komast aftur í úrslit því við erum með alveg nýjan hóp. Sérstaða okkar er sú, að fæstir krakkanna æfir skipulega íþróttir, þeir búa hérna í sveitinni í Borgarfirði og á Bifröst. Því hefur það verið stefna okkar að hafa íþróttatímana erfiða og það er að skila sér, því heilt yfir séð eru krakkarnir í góðu formi.
Púla í íþróttatímunum
Hér í Varmalandsskóla fá nemendur íþróttatíma fjórum sinnum í viku sem er miklu meira en flestir fá. Og það hefur verið heilsustefna skólans að þær séu erfiðar. Þetta eru fyrst og fremst hörku þrekæfingar sem krakkarnir fara í gegnum, það er skylda en ekki val. Sú formúla virkar vel og skilar sér í hraustum unglingum.Við höfum verið með einn tíma í viku með séræfingum vegna Skólahreysti og vonandi stendur hópurinn sig vel,“ segir Íris en keppendur Varmalandsskóla eru úr áttunda, níunda og tíunda bekk.
Lofar framtak Andrésar og Láru
Í samtalinu lá Íris, sem gerði á sínum tíma garðinn frægan í frjálsíþróttum og átti lengi Íslandsmetið í spjótkasti, ekki á hrifningu sinni með Skólahreysti. „Ég er ofsalega ánægð með þetta framtak þeirra Andrésar Guðmundssonar og Láru Helgadóttur. Það er að skila gríðarlegum áhuga á hreyfingu, ekki bara meðal barna og unglinga heldur eldri líka.
Þátttakan í Skólahreysti er gríðarleg hvatning fyrir krakkana og það hafa allir gaman af að horfa á keppnina í sjónvarpi. Og formið á þessu er með þeim hætti að það geta allir verið með. Við erum til dæmis aðeins um hundrað manna skóli en getum keppt á nær jafnréttis grunni við þá stærri.
Ég er á því að þetta sé eitthvað það besta sem gerst hefur fyrir íþróttirnar í landinu og unglingana í mjög langan tíma. Skólahreysti er frábært afrek hjá þeim hjónum og ég vona að keppnin haldi áfram og njóti vinsælda um ókomin ár,“ sagði Íris.







